 |
| Fékk kínverska fortune cookie |
Viku of seint, ég veit. En mig langar samt að segja frá bolludeginum sem við héldum hérna í Kanada fyrir kanadísku fjölskyldu systur minnar! Ástæðan fyrir því að ég sé svo sein í þessum skrifum er að alla síðustu viku er ég búin að vera fárveik. Matareitrun eða einhver hræðilegur vírus sem ég greip, við vitum ekki hvað þetta var, ég er allavega búin með minn skammt af detoxi á þessu ári!! Nóg um það ég er enn á lífi og heilbrigð, fyrsti dagurinn í ræktinni búinn í dag eftir þessa veikinda viku og ég er 10x sterkari! Hversu góð tilfinning það var að komast aftur í ræktina og hrista aðeins á sér rassinn.
Síðasta Sunnudag ákváðum ég og systir mín að fagna bolludeginum. Við ætluðum sko að vera rosa myndarlegar og baka bollurnar kvöldinu áður svo við þyrftum ekki að stressa okkur í því á Sunnudeginum. Þar sem þetta var í fyrsta skiptið sem við báðar vorum að baka gerdeigsbollur vorum við ekki alveg með hlutina á hreinu í fyrstu. Við fundum einhverja súper auðvelda uppskrift á netinu frá Hússtjórnunarskólanum og hugsuðum að þetta yrði ekkert mál. Eina sem var í þessari uppskrift var hveiti, ger, vatn og MIKIÐ smjörlíki. Þegar ég segi MIKIÐ þá er ég að tala um að deigið var löðrandi í fitu. Eitthvað fannst okkur þetta skrítið en leyfðum við deiginu að taka sinn tíma í að lyfta sér. Svo var komið að því að móta bollurnar og setja þær inní ofn. Enn fannst okkur þetta eitthvað skrítið, deigið var eitthvað svo blautt og slepjulegt. Inní ofn settum við bollurnar og biðum í eftirvæntingum í 10 mínútur (eins og stóð í uppskriftinni) að þær kæmu út fagurgylltar og fullkomlega rúnaðar bollur. Ekki var það alveg. Útúr ofninum komu 15 kexkökur!! Þær höfðu ekki lyft sér og í staðinn voru þær flatar og ljótar. Ekki alveg það sem við vorum að sækjast eftir. Klukkan var orðin nálægt 9 um kvöldið hjá okkur og við í algjöru panikki að finna út hvernig við ættum að redda þessu. Við gátum ekki eyðilagt okkar fyrsta bollukaffi og við búnar að lofa fólki dýrindis rjómabollum! Á endanum ákváðum við að hringja í mömmu, klukkan þá orðin vel í kringum 3 um nóttina á Íslandi, og biðja hana um hennar uppskrift (sem við hefðum átt að gera í byrjun) og auðvitað reddaði mamma okkur! Hún hló bara, gróf upp uppskriftabókina sína og óskaði okkur góðs gengis. Þekkir ábyggilega dætur sínar sem vilja hafa allt fullkomið þegar kemur að svona hlutum.

 |
| Aðeins misheppnaðar greyin. |
Aftur lögðum við í baksturinn og uppúr miðnætti komu bollurnar fullkomnar úr ofninum! Nú gátum við farið sáttar að sofa. Sunnudagurinn rann upp (Sunday Bunday eins og við köllum þennan dag núna) og við gátum farið að útbúa fyllingarnar og skreyta þessar fínu bollur. Nú er Sunnudagurinn okkar nammidagur þannig við misstum okkur aðeins í gleðinni. Fyllingarnar sem urðu fyrir valinu var karamellurjómi, jarðaberjarjómi, vanillubúðingur, sulta og auðvitað dökkt súkkulaði toppað á bollurnar.
 |
| Auðvitað snapchattar maður ferlið! |
 |
| Nokkuð vel heppnaðar myndi ég nú segja! |
Það má segja að þessar bollur slógu í gegn! Fólk át yfir sig eins og venjan er á bolludeginum og margir spurðu hvar það væri hægt að fá svona bollur. Kanski við erum bara komin með business hérna úti! ;) En héðan í frá verður mömmu uppskrift alltaf notuð. Mömmur vita best!
 |
| Gleðilegan Bolludag! :) |
Alexandra Sharon
Ekta Alexöndru kjóll ótrúlega flottur og þú líka ! En sérstaklega bollurnar ég hef aldrei séð svona flottar heimagerðarbollur :D
ReplyDeleteTrúi ekki að þið hafið hringt í mömmu ykkar klukkan 3 um nótt hahaha
Haha já, allt fyrir bollurnar! En þetta er ekki kjóll, þetta er svunta ;)
ReplyDelete