Friday, March 6, 2015

Bólgulaust líf með kjúklingarétti mömmu

Síðustu vikur hjá mér eru búnar að vera lærdómsríkar þegar það kemur að mínum eigin líkama. Eins og ég hef sagt frá þá eru ég og systir mín að passa vel upp á mataræðið og hreyfa okkur reglulega. Alltaf á Sunnudögum þá leyfum við okkur svindldag sem inniheldur hveiti, sykur og allt þetta sem fylgir ruslmat. Núna síðasta Mánudag varð ég svo veik í bakinu, daginn eftir svindlið. Það var alveg augljóst að þetta voru áhrif matarins deginum áður. Þar sem ég er að kljást við vefjagigt þá er ég með svakalega mikið af innri bólgum. Með breyttu mataræði hef ég náð að halda þessum bólgum í skefjum, mér byrjaði að líða mikið betur líkamlega og andlega þegar ég fór að huga að mataræðinu 100%. ALLAR bólgurnar sem ég hef haldið í skefjum komu aftur eftir þennan eina svindldag! Þvílíkt hvað mér leið illa, ég var rúmliggjandi allan daginn og leið fáránlega. Það er búið að taka mig næstum heila viku að jafna mig frá þessu. Ég bara vissi ekki að þetta væri hægt! Nú höfum við ákveðið að breyta svindldögunum aðeins, við ætlum ekki að sleppa honum heldur ætlum við að reyna að gera "hollari" útgáfur af því sem okkur langar í. Hveiti, ger og sykur eru alls ekki vinir mínir. 


Mig langar til að deila með ykkur einum kjúklinga ofnrétt sem kemur frá móður minni. Mamma hefur gert þennan rétt alveg frá því við munum eftir okkur, hinsvegar hefur hann alltaf breyst eitthvað yfir árin. Systir mín man eftir Campell súpu í uppskriftinni á meðan ég man bara eftir Matreiðslurjóma (ellefu ára aldursmunur á okkur systrum, mamma hefur eitthvað breytt uppskriftinni eftir árunum). Nú hinsvegar höfum við breytt uppskriftinni aftur! Ég held það sé bara viðeigandi þar sem rétturinn hefur tekið ákveðnum breytingum í gegnum tíðina. Ég vil taka það fram að uppskriftin sem við gerðum er mjög stór, hún entist í 4-5 máltíðir fyrir 3 manns. Uppskriftin hljómar svona:

Kjúklingaofnréttur 

Heill steikur kjúklingur
2 bollar brún hrísgrjón
1 dós Kókosmjólk
1 lítil dós maís baunir
1 rauð paprika
1 stór brokkolí haus
6-7 sveppir (valkvæmt um fjölda sveppa)
Salt og pipar
Rifinn ostur

Aðferð:

1. Rífið niður allann kjúklinginn
2. Skerið niður papriku, sveppi og brokkolí.
3. Setjið soðin hrísgrjón í eldfast mót
4. Bætið við restinni í eldfasta mótið
5. Hellið kókosmjólkinni yfir og blandið öllu saman (getið bætt við smá vatni ef ykkur finnst hann ekki vera með nægan vökva)
6. Saltið og piprið eftir smekk og hrærið vel í
7. Stráið smá rifnum osti yfir
8. Inní ofn á 180°celcius þar til osturinn er gylltur

Langar að borða þetta núna!

Þetta er frábær og einfaldur ofnréttur sem uppfyllir alveg prótein - kolvetni - fitu skalann.

Verði ykkur að góðu og njótið vel! 

Alexandra Sharon

1 comment: