![]() |
| Séð út um svefnherbergisgluggann |
Hér er ég komin með heiðarlega tilraun að stofna bloggsíðu! Þetta verður smá áskorun veit ég, en hver elskar ekki áskorun í byrjun nýtt árs. Þar sem ég er á nýjum stað, með nýjan lífsstíl, á nýju ári ákvað ég að hví ekki skella í eina svona fína bloggsíðu og toppa algjörlega þennan nýja lífsstíl!
Það gæti komið vitlaus fallbeyging eða stafsetningarvilla inná milli, ég vona að þið fyrirgefið mér það en ég geri mitt besta að halda mig við rétt íslenskt málfar, með örlítið af slettum hér og þar ;)
Nú er ég búin að dvelja næstum heilan mánuð í útlandinu góða, nánar tiltekið í bænum Guelph í Kanada. Þessi bær er um það bil 40 mínútna keyrsla frá Toronto í Ontario fylkinu. Um 115.000 manns búa hér og er þetta svokallaður háskólabær. Lítill bær fyrir kanadamenn en fyrir mér ekki svo lítill, þetta er sirka 1/3 af öllu Íslandi! Hér elska menn hokký, allir eiga snjóblásara, drekka Tim hortons og keyra um á "van". En nóg um það. Ég spila ekki hokký, á ekki snjóblásara og drekk ekki Piss hortons.
| Bestu grænmetisbuff sem ég hef smakkað! |
En þetta er þó ekki eina sem ég hef verið að gera hér, auðvitað kíkti ég í búðir! ÉG ELSKA WALMART. Já, ég er forfallin walmart verslari. Ég vildi að ég gæti verslað allt þarna og flutt það til Íslands, en ég passa mig nú á að fara ekki yfir línuna ;) Verðin hérna eru bara "too good to be true"! En geymum það þar til næst. Ég vil ekki þreyta ykkur of mikið. Þessi síða er í vinnslu og mun ég reyna að vera eins dugleg og ég get að skrifa hér inn og setja ýmislegt áhugavert inn.
![]() |
| Prinsinn á heimilinu hatar ekki knúsin |
Lifðu í lukku en ekki í krukku!
Alexandra Sharon


Ótrúlega flott síða :D Hlakka til að lesa allann þann fróðleika sem þú hefur uppá að bjóða
ReplyDelete