Thursday, March 19, 2015

Vorfögnuður með steikarsúpu

Kasmoon og Sushi elska sólina
Þá eru enn ein veikindin búin að banka uppá hjá okkur á Mountford drive! Nú er það flensan sem hefur stoppað við, smá glaðningur handa okkur rétt fyrir sumarið :) Sem betur fer sendi mamma mér Ísfólkið svo ég hafi nú eitthvað að gera (fyrir utan að Netflix er besti vinur minn). Enn er smá kalt í lofti hjá okkur, en það er byrjað að hlýna aðeins! Grasið er komið fram, snjórinn farinn að kveðja, sólin byrjuð að kíkja við en kalda golan dansar hér enn. Mikið hlakka ég til þess þegar sumarið sýnir andlitið og við segjum bless við kalda veturinn! Kettirnir á heimilinu eru allavega komnir með vorfiðring og væla stanslaust um að fá að fara út á svalirnar. Við Íslendingar elskum sólina og munum aldrei hætta að elska hana! Þegar ég sé sólina skína og heyri fuglana syngja út um gluggann þá kemur íslendingurinn fram í mér, nú verð ég sko að skella mér í sumarkjólinn og fara út að grilla! En um leið og svalahurðin er opnuð, þá rennir maður upp peysunni og bíður eftir næsta sólríka degi sem kemur. Á svona dögum, sérstaklega þar sem ég er með flensuna núna, þá er yndislegt að fá sér góða og bragðmikla súpu. Systir mín eldaði fyrir mig rosalega góða steikarsúpu, sem er svipuð til íslensku kjötsúpunnar, bara aðeins bragðsterkari og meira grænmeti :) Langar mig til að deila þessari súpu með ykkur og vona að þið njótið vel! Nú býð ég spennt eftir páskunum því mamma hefur sent okkur nokkur gúmelaðe íslensk páskaegg! jesss!


Steikarsúpa

12 skammtar

Innihald

800 gr fitulítið steikar kjöt (notaði naut)
1 hvítlauksgeiri
1 laukur
3 sellerý stilkar
3 paprikur (gul, rauð, græn)
2 1/2 L kjöt kraftur
1 bolli rauðvín
1/2 bolli parsley 
1/4 bolli þurrkað timian
1/2 tsk marjoram / Oregano
1/4 tsk red pepper (held það sé eins og chilli krydd/ cayenne pipar)
1 lárviðarlauf
2 stórar kartöflur
2 1/2 bolli saxaðar gulrætur

Aðferð

Steikið kjötið í súpu potti með 1 msk af ólífu olíu í sirka 10 mínútur. Bætið við lauk og hvítlauk og eldið í 5 mínútur í viðbót. Bætið rauðvíninu útí til að þrífa pottinn frá brúnum blettum sem hafa myndast í pottinum. Setjið restina af innihaldinu í pottinn og eldið í 1 klukkutíma. Saltið eftir þörf.

Kraftmikil og góð steikarsúpa!



Þar til næst :)

Alexandra Sharon

Friday, March 6, 2015

Bólgulaust líf með kjúklingarétti mömmu

Síðustu vikur hjá mér eru búnar að vera lærdómsríkar þegar það kemur að mínum eigin líkama. Eins og ég hef sagt frá þá eru ég og systir mín að passa vel upp á mataræðið og hreyfa okkur reglulega. Alltaf á Sunnudögum þá leyfum við okkur svindldag sem inniheldur hveiti, sykur og allt þetta sem fylgir ruslmat. Núna síðasta Mánudag varð ég svo veik í bakinu, daginn eftir svindlið. Það var alveg augljóst að þetta voru áhrif matarins deginum áður. Þar sem ég er að kljást við vefjagigt þá er ég með svakalega mikið af innri bólgum. Með breyttu mataræði hef ég náð að halda þessum bólgum í skefjum, mér byrjaði að líða mikið betur líkamlega og andlega þegar ég fór að huga að mataræðinu 100%. ALLAR bólgurnar sem ég hef haldið í skefjum komu aftur eftir þennan eina svindldag! Þvílíkt hvað mér leið illa, ég var rúmliggjandi allan daginn og leið fáránlega. Það er búið að taka mig næstum heila viku að jafna mig frá þessu. Ég bara vissi ekki að þetta væri hægt! Nú höfum við ákveðið að breyta svindldögunum aðeins, við ætlum ekki að sleppa honum heldur ætlum við að reyna að gera "hollari" útgáfur af því sem okkur langar í. Hveiti, ger og sykur eru alls ekki vinir mínir. 


Mig langar til að deila með ykkur einum kjúklinga ofnrétt sem kemur frá móður minni. Mamma hefur gert þennan rétt alveg frá því við munum eftir okkur, hinsvegar hefur hann alltaf breyst eitthvað yfir árin. Systir mín man eftir Campell súpu í uppskriftinni á meðan ég man bara eftir Matreiðslurjóma (ellefu ára aldursmunur á okkur systrum, mamma hefur eitthvað breytt uppskriftinni eftir árunum). Nú hinsvegar höfum við breytt uppskriftinni aftur! Ég held það sé bara viðeigandi þar sem rétturinn hefur tekið ákveðnum breytingum í gegnum tíðina. Ég vil taka það fram að uppskriftin sem við gerðum er mjög stór, hún entist í 4-5 máltíðir fyrir 3 manns. Uppskriftin hljómar svona:

Kjúklingaofnréttur 

Heill steikur kjúklingur
2 bollar brún hrísgrjón
1 dós Kókosmjólk
1 lítil dós maís baunir
1 rauð paprika
1 stór brokkolí haus
6-7 sveppir (valkvæmt um fjölda sveppa)
Salt og pipar
Rifinn ostur

Aðferð:

1. Rífið niður allann kjúklinginn
2. Skerið niður papriku, sveppi og brokkolí.
3. Setjið soðin hrísgrjón í eldfast mót
4. Bætið við restinni í eldfasta mótið
5. Hellið kókosmjólkinni yfir og blandið öllu saman (getið bætt við smá vatni ef ykkur finnst hann ekki vera með nægan vökva)
6. Saltið og piprið eftir smekk og hrærið vel í
7. Stráið smá rifnum osti yfir
8. Inní ofn á 180°celcius þar til osturinn er gylltur

Langar að borða þetta núna!

Þetta er frábær og einfaldur ofnréttur sem uppfyllir alveg prótein - kolvetni - fitu skalann.

Verði ykkur að góðu og njótið vel! 

Alexandra Sharon